Heimsækjum Þingeyri!

Í sumar verður öflug dagskrá í boði á Þingeyri og í Dýrafirði alla daga vikunnar

Það verður bókstaflega allt að gerast á Þingeyri og í Dýrafirði í sumar!

Á hverjum degi frá 20. júní til 7. ágúst verða einhvers konar viðburðir í boði í firðinum fagra, til viðbótar við alla þá þjónustu og hátíðir sem fyrirhugaðar eru.

Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar!

Frekari upplýsingar um hvern viðburð fyrir sig, sem og hátíðir, er hægt að nálgast á vef Vestfjarðastofu hér.

„Heimsækjum Þingeyri“ er samstarfsverkefni fjölmargra þjónustu- og afþreyingaraðila í Dýrafirði. Blábankinn hefur yfirumsjón með verkefninu og Öll vötn til Dýrafjarðar, byggðaþróunarverkefni Brothættra byggða, styrkti verkefnið.

Previous
Previous

Startup Westfjords 2022

Next
Next

Vinnustofa um stafræna flakkara á norðurslóðum